Foreldramorgnarnir í Guðríðarkirkju eru í safnaðarsalnum kl. 10-12 yfir vetrarmánuðina. Lovísa kirkjuvörður og Sr. María Rut taka á móti foreldrum í spjall og kósíheit, síðan er kaffi og meðlæti ásamt fræðslu einsöku sinnum, börnin sofa vært í Liljugarðinum á meðan eða leika sér með allskyns dót.
Foreldramorgnarnir eiga sína eigin síðu á Facebook og þar er hægt að fylgjast með öllu því skemmtilega sem er að gerast, sjá: http://www.facebook.com/groups/56874248005/