Á þriðjudögum eru krílakórarnir með æfingar í kirkjunni. Kórinn er fyrir börn á aldrinum 1-6 ára í fylgd með foreldri/forráðamanni í kirkjunni okkar! Undirbúningur fyrir kórastarf eða annað tónlistarnám með áherslu á söng, taktskyn og hlustun.
- Bangsakór- 2-4 ára í fylgd með foreldri – þriðjudögum kl. 16:30-17:00
- Krílakór- 4-6 ára í fylgd með foreldri – þriðjudögum kl. 17:10-17:40
Barnakór Guðríðarkirkju syngur tónlist af ýmsum toga, veraldlega og trúarlega, bæði eldri perlur og splunkuný verk.
Börnin hljóta þjálfun í söng, framkomu, hlustun, rytmaskyni og nótnalestri. Kórarnir koma fram í fjölskyldumessum, auk ýmissa skemmtilegra uppákoma yfir vetrartímann.
Kórastarfið er gjaldfrjálst, ekkert þátttökugjald
Kórstýra er Alda Dís Arnardóttir.
Ef þið hafið einhverjar spurningar er ykkur velkomið að hafa samband við Öldu Dís – Verið hjartanlega velkomin
Facebook hópur er fyrir krílakóranna og best að heyra í Öldu Dís til að fá upplýsingar um það