Hægt er að panta viðtal hjá sóknarpresti sr. Leif eða presti sr. Maríu Rut og ræða um sérhvað hvaðeina sem þér liggur á hjarta. Á prestum er trúnaðarskylda.
Kirkjan er opin þriðjudaga til föstudaga kl. 10-16 og þá er yfirleitt hægt að setjast inn í helgidóminn í ró og næði, kveikja á kerti fyrir framan Kristmyndina, opna bænabók og horfa út í altarisgarðinn.