Aðalsafnaðarfundur Grafarholtssóknar verður haldinn mánudaginn 31.mars nk. kl. 17:00 í Guðríðarkirkju.

Á dagskrá eru venjulega aðalfundarstörf skv. 4. gr. starfsreglna um söfnuði og sóknarnefndir.

Um aðalsafnaðarfund: Aðalsafnaðarfundur er vettvangur starfsskila og reikningsskila af hendi sóknarnefndar og einstakra nefnda innan sóknarinnar. Á aðalsafnaðarfundi skal taka fyrir eftirfarandi. Gera skal grein fyrir rekstri og starfsemi sóknarinnar á liðnu starfsári. Afgreiðsla endurskoðaðra reikninga sóknar og kirkjugarðs f sl. ár. Einnig skal gerð grein fyrir starfsemi héraðsnefndar og héraðsfundar. Ákvarðanir um meiriháttar framkvæmdir og framtíðarskuldbindingar skulu gerðar á aðalsafnaðarfundi auk kosningar í stjórnir og ráð þegar það á við.

 

Sóknarfólk er allt hjartanlega velkomið.

Fh. Sóknarnefndar
Sóknarprestur.