Bleik guðsþjónusta sunnudaginn 27.október kl. 11 í Guðríðarkirkju

Leifur Ragnar Jónsson þjónar fyrir altari. Sigurbjörn Þorkelsson flytur hugvekju.

Arnhildur Valgarðsdóttir organisti og kór Guðríðarkirkju syngur. Hrafnkatla Valgeirsdóttir,

Sirrý Gunnarsdóttir og Þórunn Stefánsdóttir syngja einsöng. Lovísa Guðmundsdóttir kirkjuvörður.

Sunnudagaskólinn verður á sama tíma í safnaðarheimilinu í umsjá Tinnu Rósar Steinsdóttur.

Verið hjartanlega velkomin

Kaffi og bleikt bakkelsi eftir stundirnar.

Hvetjum alla til að klæðast bleiku til að sýna samstöðu í baráttunni gegn krabbameini hjá konum.