Stundin hefst inni í kirkju kl. 12:10 með helgistund og söng. Því næst snæðum við ljúffengan hádegisverð að la Lovísa ! Gestur dagsins er Jón G. Pétursson sviðsstjóri sjósviðs hjá rannsóknarnefnd samgönguslysa. Hann mun fjalla um slysarannsóknir og hvað hefur breyst í þeim málum. Sannarlega áhugavert efni.
Við minnum svo á að það er ávallt hægt að koma fyrirbænarefnum til okkar.
Hlökkum til að hitta ykkur öll !
Leifur, María, Lovísa og Arnhildur !