Kæra safnaðarfólk í Grafarholtssókn og aðrir íbúar.
Starfsfólk og sóknarnefnd Guðríðarkirkju sendir sínar bestu nýársóskir með þökkum fyrir líðandi ár. Við þökkum sérstaklega fyrir góðar undirtektir við bón um framlög í líknarsjóð kirkjunnar. Það kom sér sannarlega vel og skilaði sér til þeirra sem hallari fótum standa í sókninni. Guð gefi okkur öllum farsæld, frið og gleði á nýju ári. Sjáumst vonandi sem fyrst á nýju ári.
Guð blessi okkur öll.