Það verður opið hús hjá okkur miðvikudaginn 10.03 kl: 13:00 við pössum uppá millibilið og virðum sóttvarnir. Byrjum með hugvekju og bæn inn í kirkju. Hrönn organisti kemur og spilar nokkur lög og við syngjum undir hjá henni .Halldóra Bjarnadóttir hjúkrunarfræðingur kemur í heimsókn til okkar og ræðir um ýmislegt . Lovísa töfrar fram kaffi og meðlæti kr. 700.- Við hlökkum til að sjá ykkur, starfsfólk Guðríðarkirkju.
sr. Karl, sr. Leifur, Hrönn og Lovísa.