Forseti Alþingis og Vorboðinn, kór eldri borgara á uppstigningardag í Guðríðarkirkju.
Íslenska þjóðkirkjan hefur í rúman aldarfjórðung helgað uppstigningardag eldri borgurum þessa lands.
Þjónustan í Guðríðarkirkju í Grafarholtsprestakalli tekur líka mið af því þennan dag en þar hefst guðsþjónustan kl 11:00.
Sr. Karl V. Matthíasson sóknarprestur þjónar fyrir altari og forseti Alþingis Einar K. Guðfinnsson mun stíga í stólinn og predika. Kirkjukórinn að þessu sinni verður Vorboðinn, kór eldri borgara í Mosfellsbæ undir stjórn Hrannar Helgadóttur, organista Guðríðarkirkju. Sigurbjörg Þogrímsdóttir les ritningarlestra.
Eftir guðsþjónustuna verður svo boðið upp á kirkjukaffi og veitingar að hætti Lovísu kirkjuvarðar. Þá munu þeir Davíð Ólafsson og Stefán Íslandi slá á létta strengi í tali og tónum.
Þó þessi guðsþjónusta sé tileinkuð eldri borgurum þá eru börn og barnabörn að sjálfsögðu líka velkomin.