Félagsstarf fullorðinna 18+ er í Guðríðarkirkju á morgun 19. febrúar. Starfið byrjar á helgistund kl. 13:10 og sr. Sigríður les úr Íslandsklukkunni í framhaldi. Góður gestur, Þórey Dögg Jónsdóttir, formaður Ellimálaráðs Reykjavíkurprófastdæmi eystra kemur í heimsókn og segir okkur frá starfi ráðsins. Lovísa kirkjuvörður verður með sitt rómaða kaffi og meðlæti á kr. 500,-. Umsjónarmaður er Sigurbjörg Þorgrímsdóttir. Upplýsingar á netfanginu: felgasstarf@grafarholt.is. Hlökkum til að sjá ykkur.