Barnakór Grafarholtssóknar
Kórferðalag og æfingabúðir í Kaldárseli
Laugardaginn 18.apríl, verður kórferðalag og æfingabúðir í Kaldárseli í Hafnarfjarðarhrauni. Hittumst, klædd eftir veðri, fyrir utan Guðríðarkirkju, Kirkjustétt 8, Grafarholti kl.: 9:00. Við æfum okkur að syngja, leikum okkur og skemmtum í sveitasælunni. Komum heim í Guðríðarkirkju kl.: 17:00.
Það er nauðsynlegt að senda tölvupóst eða SMS og tilkynna þátttöku, sem fyrst.
Það væri mjög gott ef einhverjir foreldrar/forráðamenn kæmu með, til að aðstoða og njóta dagsins með okkur.
Það verða framreiddir ávextir við komu í Kaldársel, við höfum pylsuveislu í hádeginu og útbúum einnig miðdegishressingu í Kaldárseli.
Bestu kveðjur,
Berglind kórstjóri
S. 660-7661
Hægt er að skoða myndir frá Kaldárseli á eftirfarandi slóð: