Tónleikasalur
Guðríðarkirkja er frábær tónleikasalur og var m.a. hönnuð af sérfræðingum í hljómburði. Gagnrýnendur og upptökustjórar eru sammála um að Guðríðarkirkja sé einn besti tónleikasalur landsins. Kirkjan býður upp á frábæran Estonia flygil og lítið 4ra radda orgel positíf. Upplýsingar um tónleika veitir Davíð Ólafsson í síma 897 1533.
Guðríðarkirkja tekur 370 í sæti en salnum má skipta niður í þrjár einingar.
Hægt er að opna fram í gangveg og þá tekur salurinn 233 í sæti.
Skilja má tónleikasalinn frá veitingasal með gangi. Þá tek salurinn 164 í sæti.
Stólarnir eru mjög þægilegir og sér hannaðir fyrir útlit og hljómburð hússins. Inni í kirkjunni eru tveir garðar með tjörn sem gera allt umhverfið náttúrulegt og fallegt.





