Söfnuðurinn
Í söfnuðinum býr mikið af ungu fólki og er mikil áhersla lögð á Guðs góðu sköpun, mannréttindi og jafnrétti í helgihaldi og fræðslu. Sóknarpresturinn hefur stúderað vistguðfræði, póstmóderníska guðfræði og hinsegin guðfræði og tekur að sér að gifta samkynhneigð pör.
Í september 2011 bjuggu tæplega 5700 manns í Grafarholti og Úlfarsárdal. Skólarnir í hverfinu eru þrír, Ingunnarskóli, Sæmundarskóli og Dalskóli og leikskólarnir fjórir: Maríuborg, Geislabaugur, Reynisholt og Dalsskóli sem er sambyggður grunnskóli og leikskóli. Fréttir úr hverfinu eru sagðar reglulega á heimasíðunni www.grafarholtid.is sem rekin er af unglingum í hverfinu og öfnuðurinn gefur líka út fréttabréf sem kemur út á eins til tveggja mánaða fresti.
Af þessum 5700 eru um 4500 manns í Þjóðkirkjunni og skipta má söfnuðinum upp á þennan hátt (gögn frá Biskupsstofu):