Trúfélagsstaða skírnarþega
Hér er að finna upplýsingar um trúfélagsskráningu á vef Þjóðkirkjunnar. Hagstofan hefur þá vinnureglu að skrá barn sjálfkrafa í trúfélag móður. Þess vegna skiptir miklu máli að foreldrar skírnarbarna (eða skírnarþeginn sjálfur ef um fullorðna manneskju er að ræða) séu sér meðvituð um eigin trúfélagsstöðu. Eyðublöð um breytingu á trúfélagsskráningu er að finna á vef Hagstofunnar fyrir 16 ára og eldri og fyrir börn yngri en 16 ára með því að smella á hlekkina sem eru undirstrikaðir. Hægt er að fylla blöðin út á netinu, prenta síðan út og undirrita og láta prestinn fá í skírnarviðtalinu. Það er líka hægt að ganga frá skráningunni rafrænt, þá þarf ekki að undirrita þau og þau berast beint til Þjóðskrár. Hér er að finna upplýsingar um netskil.