Guðríðarkirkja

 

Tónlist

Tónlistarstarf

Kirkjukór Grafarholtssóknar

Æfingar kirkjukórsins eru á þriðjudagskvöldum frá kl. 19.30 – 21.30 í Guðríðarkirkju. Skemmtilegt, launað félagsstarf með góðu fólki. Alltaf hægt að bætast í hópinn.

Kórstjóri er Hrönn Helgadóttir og hægt er að nálgast allar upplýsingar hjá henni í síma 557-9996, 695-2703 eða á netfanginu hronnhelga@simnet.is.

Barnakór Grafarholtssóknar

er opinn öllum börnum í 2.-6. bekk. Kórinn æfir af krafti, syngur í fjölskyldumessum og við önnur tækifæri. Kórstjóri er Berglind Björgúlfsdóttir. Æfingarnar í vetur verða í Guðríðarkirkju á miðvikudögum kl. 14:10-15:10 fyrir 4. – 6. bekk og frá kl. 15:15 – 16:15 fyrir 2. – 3. bekk.

Nauðsynlegt er að skrá börnin í kórinn. Best er að hafa samband við Berglindi kórstjóra í tölvupósti: barnakor@gmail.is. Allar upplýsingar má fá hjá Berglindi í tölvupóstinum eða í síma: 660-7661.

 

Guðríðarkirkja, Kirkjustétt 8, 113 Reykjavík. Sími 577-7770 · Kerfi RSS