Börn og unglingar
Barnastarf
Sunnudagaskóli
er alla sunnudaga kl. 11 í kirkjunni. Þar er mikill söngur og glatt á hjalla, brúður koma gjarnan í heimsókn og börnin heyra sögur úr Biblíunni. Dagskráin miðast við yngsta aldurshópinn en allir eru hjartanlega velkomnir. Umsjónarmaður er Árni Þorlákur Guðnason.
Litlir lærisveinar
nefnist kirkjustarf, sem Grafarholtssókn býður upp á í vetur fyrir börn í 1. bekk grunnskóla. Starfið fer fram í Sæmundarskóla á fimmtudögum kl. 15:00-15:45. Sögur, litir, söngur og leikir. Sérstök áhersla lögð á sjálfsstyrkingu í gegnum leiklist. Starfið fer fram í samstarfi við Fjósið, frístundaheimili Sæmundarskóla, en öll sex ára börn eru velkomin. Nauðsynlegt er að skrá börnin. (Smellið á SÓKN og svo “Eyðublöð” hér til hliðar.)
Litlir lærisveinar fyrir krakkana í Stjörnulandi hittast í Guðríðarkirkju á föstudögum kl. 13:30 – 14:30
Barnakór Grafarholtssóknar
er opinn öllum börnum í 2.-6. bekk. Kórinn æfir af krafti, syngur í fjölskyldumessum og við önnur tækifæri. Æfingar í Guðríðarkirkju eru á miðvikudögum kl. 14:10-15:10 fyrir 4.-6. bekk og kl. 15:15-16:15 fyrir 2.-3. bekk. Kórstjóri Berglind Björgúlfsdóttir.
Breytendur í Grafarholtssókn
eru hluti af ungliðahreyfingu Hjálparstarfs kirkjunnar og samnorrænum samtökum Changemaker.
Það er fólk sem stjórnar heiminum, og þess vegna er það fólk sem getur breytt honum!
Markmið breytanda er a) Að koma auga á ranglæti í heiminum og b) beita lýðræðislegum aðferðir til að breyta honum til hins betra. Breytendur einbeita sér fyrst og fremst að ranglæti við sjálf berum beint og óbeint ábyrgð á. Breytendur trúa því að fólk sé almennt góðhjartað og nota þess vegna jákvæðar og sýnilegar aðferðir til að ná fram baráttumálum sínum, frekar en að stilla fólki upp við vegg. Breytendur vilja vitundarvakningu, þess vegna stunda breytendur fræðslu og eru með kynningar t.d. í skólum og á vinnustöðum. En breytendur vilja líka áþreifanlegar breytingar, þess vegna setja breytendur sér raunhæf markmið og vinna markvisst að þeim þar til þeim er náð. Dæmi um slíkt markmið er að Ísland sé tekið af lista yfir þjóðir með undanþágu frá Kyoto-bókuninni um útblástur gróðurhúsalofttegunda, sem og var gert, meðal annars vegna þrýstings frá Breytöndum. Næsta markmið okkar er að fá fleiri Fairtrade vörur í búðir á Íslandi.
Hver og einn hefur sérstaka hæfileika og þekkingu sem gera hópinn sterkari. Þess vegna viljum við fá ÞIG í lið með okkur. Skráðu þig í facebook hópinn okkar og fylgstu með því sem er á döfinni.
Breytendur hittast í Fókus annað hvert þriðjudagskvöld kl 20:00 – 22:00