Guðríðarkirkja

 

Bænastundir

Bænastundir í Grafarholtssöfnuði

Dagmálatíð í Guðríðarkirkju

Boðið er upp á morgunbænir á miðvikudagsmorgnum kl. 9 í Guðríðarkirkju, svo nefnda dagmálatíð. Presturinn tekur við fyrirbænum og einnig er hægt að skilja bænir eftir í bænakassa við innganginn í kirkjuskipið. Stuðst verður við bænabók sr. Karls Sigurbjörnssonar biskups. Setið er í kórnum sunnanmegin, svo að Geislagarðurinn nýtur sín vel við íhugunina. Dagmálatíðin tekur u.þ.b. 15 mínútur og er góð leið til að byrja daginn. Kirkjan er opnuð kl. 8:45 og er þögn í kirkjunni í 15 mínútur fyrir athöfn. Svo er drukkið kaffi ef menn vilja. Að fornu var sólarhringurinn ekki talinn í klukkustundum heldur eyktum sem miðaðar voru við gang sólarinnar og hvernig sól og önnur himintungl bar yfir kennileiti, sem þá kölluðust eyktarstaðir. Í fornkirkjunni var snemma farið að syngja tíðir í tengslum við eyktamörkin og helga þannig hvert tímabil dagsins góðum Guði. Á Íslandi tíðkaðist slíkur tíðasöngur í klaustrum og á biskupsstólunum. Dagmálatíðin er sungin klukkan 9. Tíðir eru 8 talsins: óttusöngur hinn fyrri (matines), óttusöngur hinn efri (laudes), miðmorguntíð (prima), dagmálatíð (tercia), hádegistíð (sexta), eyktartíð (nona), aftansöngur (vesper), og náttsöngur (completorium). Aftansöngurinn sem sunginn er í kirkjum landsins á aðfangadagskvöld og gamlárskvöld eru leifar af þessum forna tíðasöng.

Bænastundir í Þórðarsveigi 3

Trúfastur hópur hittist tvisvar í viku á bænastundum í þjónustusalnum, Þórðarsveigi 3. Þú ert velkomin(n) að bætast í hópinn. Bænastundirnar eru alla þriðjudags- og fimmtudagsmorgna kl. 10. Stundirnar hefjast með því að lesin eru ritningarorð og sunginn sálmur en síðan er beðið fyrir bænarefnum. Bænastundirnar leiða ýmist sr. Sigríður Guðmarsdóttir eða Aðalsteinn D. Októsson meðhjálpari og að þeim loknum hellir Sigurður Óskarsson kirkjuvörður upp á ilmandi kaffi.

Bænarefnum má koma til sóknarprests í síma 5571923 og 8952319 og á netfanginu sigridur (hja) grafarholt.is.

 

Guðríðarkirkja, Kirkjustétt 8, 113 Reykjavík. Sími 577-7770 · Kerfi RSS