Guðríðarkirkja

 

Safnaðarstarf

Messur eru að jafnaði hvern helgan dag kl. 11og eru auglýstar á forsíðunni hér á vefnum.

Bænastundir eru miðvikudagskvöld í kirkjunni, fimmtudaga árdegis í Þórðarsveigi 3 og fimmtudaga síðdegis í kirkjunni (sjá kristin íhugun).

Sunnudagaskóli er í safnaðarsalnum á sunnudögum kl. 11 yfir vetrarmánuðina. Þar er mikill söngur og glatt á hjalla og börnin heyra sögur úr Biblíunni. Dagskráin miðast við yngsta aldurshópinn en allir eru hjartanlega velkomnir.

Fjölskyldumessur eru einu sinni í mánuði kl. 11 í kirkjunni og renna þá sunnudagaskólinn og guðsþjónustan saman í hátíðlega stund með mikilli tónlist, gleði og góðum boðskap. Börn stíga á stokk og syngja eða leika fyrir gesti og barnakórinn syngur. Allir velkomnir.

Kristin íhugun. Öll fimmtudagssíðdegi er boðið upp á kristna íhugun í samkvæmt bænahefð sem kallast Centering Prayer. Centering Prayer byggir á aldagamalli hefð sem síðan var endurvakin upp úr 1970 og hefur verið að ná sífellt meiri útbreiðslu um heiminn síðan þá. Bænin byggir á orðlausri nálgun við Guð, þar sem biðjandinn tekur ákvörðun um að leitast við að opna hjarta sitt fyrir nærveru Guðs og verkan í lífi sínu. Þjálfunin felst síðan í því að læra að leiða hjá sér truflanir sem sækja á þann tíma sem bænin stendur yfir. Þetta er eitt einfaldasta form íhugunarbænar sem um getur og geta allir lært það og stundað.
Kennari verður Sigurbjörg Þorgrímsdóttir, djáknaefni og leiðbeinandi í Centering prayer.
Allir eru hjartanlega velkomnir! Áhugasamir um nánari upplýsingar geta snúið sér til Sigurbjargar Þorgrímsdóttur í síma 861-0361 og á póstfangi: sigurth@simnet.is

Litlir lærisveinar nefnist kirkjustarf, sem Grafarholtssókn býður upp á fyrir börn í 1. bekk grunnskóla. Starfið fer fram í Sæmundarskóla og Guðríðarkirkju.  Nauðsynlegt er að skrá börnin. Sögur, litir, söngur og leikir. Öll sex ára börn eru velkomin.

Barnakór Grafarholtssóknar er opinn öllum börnum í 2.-6. bekk. Kórinn æfir af krafti, syngur í fjölskyldumessum og við önnur tækifæri. Æfingar hjá 4.-6. bekk eru á miðvikudögum kl. 14:10-15:10 og hjá 2. og 3. bekk sama dag frá kl. 15:15 til 16:15.

Kirkjukór Grafarholtssóknar er öllum opinn og ávallt vantar fleiri raddir. Æfingar í Guðríðarkirkju á þriðjudögum kl. 19:30-21:30.

Sjá nánar einstaka liði safnaðarstarfsins með því að smella á flipana hér til hliðar.

 

Guðríðarkirkja, Kirkjustétt 8, 113 Reykjavík. Sími 577-7770 · Kerfi RSS