Guðríðarkirkja

 

Sjá, nú er liðin sumartíð…

Vetrarstarf Grafarholtssóknar hefst 9. september næstkomandi með fjölskyldumessu í Ingunnarskóla kl. 11, og þar með reglulegt helgihald og barnastarf safnaðarins í vetur. Engin messa verður 2. september.

Lesa áfram …

Þorgeir Arason, 29/8 2007

Skráning fermingarbarna vorsins 2008 hafin

Fermingar í Grafarholtssókn á vori komanda verða 6., 13. og 20. apríl 2008 klukkan hálftvö í Árbæjarkirkju. Skráning er hafin í fermingarfræðslu vetrarins og á fermingardaga næsta vors.

Lesa áfram …

Þorgeir Arason, 1/8 2007

Skóflustunga að nýju kirkjunni

Biskup Íslands, herra Karl Sigurbjörnsson, og nokkur fermingarbörn næsta vetrar munu taka fyrstu skóflustunguna að nýrri kirkju Grafarholtssóknar á lóðinni við Kirkjustétt miðvikudaginn 8. ágúst nk. kl. 17:30.

Lesa áfram …

Þorgeir Arason, 1/8 2007

Teikningar að væntanlegri kirkju í Grafarholti

Hér á vefnum má nú skoða teikningar að væntanlegri kirkju Grafarholtssóknar. Á bloggsíðu safnaðarins má tjá sig um teikningarnar.

Lesa áfram …

Þorgeir Arason, 8/6 2007

Sumarleyfi sóknarprests

Sóknarpresturinn í Grafarholtsprestakalli verður í sumarleyfi út júnímánuð. Vanti sóknarbörn prest í fjarveru hans má leita til presta í Grafarvogsprestakalli. Símanúmer og netföng þeirra má finna á heimasíðu Grafarvogskirkju með því að smella hér.

Lesa áfram …

Þorgeir Arason, 8/6 2007

Fjölskyldumessa 14. janúar kl. 11

Næstkomandi sunnudagur, 14. janúar, er 2. sunnudagur eftir þrettánda. Þá hefjast guðsþjónustur í Grafarholtssókn á nýju ári með fjölskyldumessu í Ingunnarskóla kl. 11. Ný litabók og límmiðar fyrir börnin.

Umsjón með stundinni hafa séra Sigríður Guðmarsdóttir, Þorgeir Arason og Hrönn Helgadóttir við flygilinn. Allir hjartanlega velkomnir.

Árni Svanur Daníelsson, 12/1 2007

Breyttur fundartími hjá KFUM og KFUK í Grafarholti

Frá og með næstu viku breytist fundartíminn hjá YD (yngri deild) KFUM & KFUK í Ingunnarskóla og munum við hittast á miðvikudögum kl. 14:30-15:30 (lestur framhaldssögu hefst kl. 14:10) á svæði 5. og 6. bekkjar. (Fyrsti fundur ársins verður þó mánudaginn 8. janúar kl. 14:30.) Starfið er eins og áður fyrir alla krakka í 4., 5. og 6. bekk og umsjón hafa Sigurbjörg Þorgrímsdóttir og Þorgeir Arason.

Unglingadeildin (UD) hjá KFUM & KFUK hittist eins og áður á þriðjudögum kl. 17:00-18:30 á svæði 7. og 8. bekkjar.

Nánari upplýsingar fást á heimasíðu KFUM & KFUK (kfum.is eða kfuk.is), hjá Þorgeiri (s. 847-9289, thorgeir@grafarholt.is) og með því að smella á “Safnaðarstarf” hér til hliðar.

Þorgeir Arason, 12/1 2007

Árámótakveðja

Sóknarprestur, sóknarnefnd og starfsfólk Grafarholtssafnaðar sendir sóknarbörnum bestu áramótakveðjur og þakkar fyrir samfylgdina á liðnu ári.

Þakka ber sérstaklega góðar viðtökur við heimasíðu safnaðarins, en frá upphafi hafa nú um 400 gestir skoðað forsíðu þessa vefjar, samtals um 1200 sinnum. Er þessi fjöldi heimsókna framar björtustu vonum og er óskandi að sóknarbörn nýti sér áfram vefinn á ári komanda. Vefurinn er í stöðugri endurnýjun og á nýju ári er m.a. von á fleiri myndasíðum úr safnaðarstarfinu og frekari upplýsingum um gang kirkjubyggingar.

Guð gefi okkur öllum gleðilegt árið 2007.

Sigríður Guðmarsdóttir, 12/1 2007

Kirkjan er opin frá þriðjudegi til föstudags frá kl. 10:00 til 16:00, lokað á mánudögum.
Sóknarprestur Grafarholtsprestakalls er dr. Sigríður Guðmarsdóttir, netfang: sigridur@grafarholt.is, veffang: sigridur.org. Viðtalstímar prests eru eftir samkomulagi.

Merki Guðríðarkirkju

Miðvikudagur

· 10:00 - 12:00 Foreldramorgnar (Lovísa)
· 11:30-13:00 Starfsmannafundur fyrsta miðvikudag í mánuði
· 14:00 - 15:00 Æfing barnakórs Guðríðarkirkju 4.-6.bekkur (Berglind)
· 15:15 - 16-15 Æfing barnakórsins Guðríðarkirkju 2.-3.bekkur (Berglind)
· 15:00 - 16:00 Fermingarfræðsla Sæmundarskóli (safnaðarsalur) (Séra Sigríður)
· 20:00 Bænastund fyrir karla með séra Karli V Matthíassyni

Dagskrá ...