Fermingarbörn söfnuðu heilum brunni!
Söfnun fermingarbarna fyrir vatnsverkefni Hjálparstarfs kirkjunnar í Afríku gekk vel í Grafarholti og safnaðist fyrir rúmlega einum brunni, sem dugar allt að 1000 manns í marga áratugi.
Þorgeir Arason, 25/11 2007
Söfnun fermingarbarna fyrir vatnsverkefni Hjálparstarfs kirkjunnar í Afríku gekk vel í Grafarholti og safnaðist fyrir rúmlega einum brunni, sem dugar allt að 1000 manns í marga áratugi.
Þorgeir Arason, 25/11 2007
Næsta sunnudag, 25. nóvember, verður messa í Þórðarsveigi 3 kl. 11, Ingibjörg María Gísladóttir guðfræðinemi prédikar. Sunnudagaskólinn er á sínum stað í Ingunnarskóla á sama tíma.
Þorgeir Arason, 22/11 2007
Litlu lærisveinarnir, starf Grafarholtssóknar fyrir sex ára börn í samstarfi við Fjósið – frístundaheimili í Sæmundarskóla, er fjölsótt og samverurnar líflegar á þriðjudögum.
Þorgeir Arason, 21/11 2007
Næsta sunnudag, 18. nóvember, verður sunnudagaskóli í Ingunnarskóla kl. 11 og messa með léttri tónlist verður í Þórðarsveigi 3 kl. 14.
Þorgeir Arason, 11/11 2007
Sóknarpresturinn í Grafarholti fer nú reglulega erlendis til að sinna kennslu og fyrirlestrahaldi á vettvangi guðfræðinnar, m.a. um næstu helgi.
Þorgeir Arason, 11/11 2007
Næsta sunnudag, 11. nóvember, sem er kristniboðsdagurinn, verður fjölskyldumessa í Ingunnarskóla kl. 11. Þar verður m.a. skírn og söngur barnakórs.
Þorgeir Arason, 6/11 2007
Samkirkjuleg bænaganga kristinna trúfélaga gegn myrkrinu á Íslandi verður gengin frá Hallgrímskirkju kl. 14 á laugardaginn, 10. nóvember, og lýkur með bænastund á Austurvelli.
Þorgeir Arason, 6/11 2007
Í dag, mánudaginn 5. nóvember kl. 18-20:30, munu fermingarbörn næsta vors í Grafarholti ganga í öll hús í hverfinu og safna peningum fyrir brunnum í Afríku á vegum Hjálparstarfs kirkjunnar.
Þorgeir Arason, 5/11 2007
Það er líf og fjör í starfi KFUM og KFUK í Grafarholtssókn og krakkarnir fást við fjölbreytt verkefni, svo sem knattspyrnu, barmmerkjagerð og hæfileikakeppni. Bæn og Guðs orð er ávallt haft um hönd í starfinu.
Þorgeir Arason, 2/11 2007
“Ég hvet alla að eiga Biblíuna og nota hana. Tala þar af reynslu sem hver annar venjulegur maður sem þarf í daglegu lífi að leita stuðnings í orði Guðs,” segir Níels Árni Lund, sóknarnefndarformaður Grafarholtssóknar, í nóvemberpistli sínum í safnaðarblaðinu.
Þorgeir Arason, 1/11 2007
Kirkjan er opin frá þriðjudegi til föstudags frá kl. 10:00 til 16:00, lokað á mánudögum.
Sóknarprestur Grafarholtsprestakalls er dr. Sigríður Guðmarsdóttir, netfang: sigridur@grafarholt.is, veffang: sigridur.org. Viðtalstímar prests eru eftir samkomulagi.
Prestur á neyðarvakt samstafrssvæðis Grafarvogs-, Grafarholts- og Árbæjarsafnaðar s. 896-7970
· Messa og barnastarf kl. 11 eða kl. 14, auglýst á forsíðu
Guðríðarkirkja, Kirkjustétt 8, 113 Reykjavík. Sími 577-7770 · Kerfi ![]()