Guðríðarkirkja

 

Sunnudagaskólinn í Guðríðarkirkju sund.16 okt. kl 11

Barnastarf verður í umsjá Árna Þorláks Guðnasonar, kaffi, djús og föndur í safnaðarheimili.

Lovísa Guðmundsdóttir, 13/10 2011

Guðsþjónusta og barnastarf í Guðríðarkirkju sund.9 okt.kl 11

Guðsþjónusta og barnastarf í Guðríðarkirkju sund.9.okt kl 11. Prestur séra Sigurjón Árni Eyjólfsson, organisti Hrönn Helgadóttir og kór Guðríðarkirkju syngur, barnastarf í umsjá Árna Þorláks Guðnasonar.Meðhjálpari Aðalstein D.Októsson og kirkjuvörður Lovísa Guðmundsdóttir. Kaffisopi í safnaðarheimili eftir messu.

 

Lovísa Guðmundsdóttir, 5/10 2011

Hlutverk kirkjunnar í samfélagsþróuninni

Séra Sigríður heldur erindið “Hlutverk kirkjunnar í samfélagsþróuninni” í Neskirkju kl. 12:15 í dag. Erindið er hluti af fundarröð framtíðarhóps Kirkjuþings á föstudögum nú í haust. Nánari upplýsingar um erindið og fundarröðina má finna á vef Þjóðkirkjunnar.

Lovísa Guðmundsdóttir, 30/9 2011

Græni dagurinn í Guðríðarkirkju fjölskyldumessa kl 11 sund.2.okt.

“Ger þú oss Kristur/Guðs sonur góði/greinar á þínu lífsins tré.” Fjölskyldumessa kl. 11. Guðríðarkirkja heldur Græna daginn hátíðlegan ár hvert fyrsta sunnudag í október með fjölskyldumessu helgaða umhverfismálum. Sameinuðu þjóðirnar ákváðu að árið 2011 skyldi verða ár skóga og Græni dagurinn þetta árið tengist þess vegna trjám og skógum heimsins og bænir dagsins tengjast vínviðnum og tré lífsins. Prestur séra Sigríður Guðmarsdóttir, organisti Hrönn Helgadóttir, barnakór Guðríðarkirkju syngur undir stjórn Berglindar Björgúlfsdóttur, meðhjálpari Aðalsteinn Dalmann Októsson og kirkjuvörður Jón Brynjar Birgisson.

Lovísa Guðmundsdóttir, 28/9 2011

Íhugun og leshópur laugardaginn 1.okt. kl 9-12 í Guðríðarkirkju.

Þá er enn og aftur komið að lestrarstundinni sem lið í fræðslu og kynningu á hinni kristnu íhugunarbæn(Centering prayer).Lesin er bókin Open Mind,Open Heart eftir Thomas Keating.

Ekki er nauðsynlegt að eiga bókina eða kunna ensku til að vera með.Alltaf skapast frjóar og góðar umræður sem allir geta hlusta á og/eða tekið þátt í.Lesturinn fer fram á íslensku.

ALLIR sem áhuga hafa á því að kynna sér efni bókarinnar eru hjartanlega velkomnir.

Nánari upplýsingar veitir Sigurbjörg Þorgrímsdóttir, leiðbeinandi í kristinni íhugun í síma 861-0361 eða sigurth@simnet.is

Með kærri kveðju

Sigurbjörg.

Lovísa Guðmundsdóttir, 28/9 2011

Messa og sunnudagaskóli í Guðríðarkirkju sund.25 sept. kl 11

Messa og sunnudagskóli í Guðríðarkirkju sund. 25sept. kl 11. Prestur séra Sigríður Guðmarsdóttir, organisti Ester Ólafsdóttir og kór Guðríðarkirkju syngur. Barnastarf í umsjá Árna Þorláks, meðhjálpari Aðalstein D.Októsson, kirkjuvörður Lovísa Guðmundsdóttir. Kaffisopi eftir messu.

Lovísa Guðmundsdóttir, 21/9 2011

Bókamarkaður í Guðríðarkirkju.

Nú erum við að byrja að safna fyrir bókamarkaðinn sem í ár verður staðsettur við prestskrifstofurnar í Guðríðarkirkju. Okkur langar því til að biðja þau sem koma í messu á sunnudaginn að kippa með sér einni eða tveimur bókum, ef þau hafa tök á og vilja taka þátt. Við leggjum þær undir altarið og byrjum bókamarkaðinn með þeim. Barnabækur eru sívinsælar, en allar bækur, hvort sem er í kilju og harðspjaldi eru ástsamlega þegnar. Við minnum líka á reikningsnúmer Líknarsjóðs Guðríðarkirkju 0114-26-3060 (kennitala kirkjunnar er 660104-3050), ef fólk vill gefa í sjóðinn.

Lovísa Guðmundsdóttir, 16/9 2011

Fermingarstarfið

Skráningu í fermingarstörfin lýkur formlega í lok þessarar viku. Fermingarbörn vetrarins eru byrjuð að sækja messur en fermingarfræðslan byrjar formlega í næstu viku með fermingarferðalaginu í Vatnaskóg. Fara Ingunnarskólakrakkarnir upp í Vatnaskóg mánudaginn, 19. sept., en Sæmundarskólakrakkarnir á föstudeginum í sömu viku, 23. sept.  Mæting er við Guðríðarkirkju báða dagana klukkan átta. Börn í 8. bekk sem standa utan fermingarfræðslu eru velkomin með í ferðina, en foreldrar þeirra þurfa að hringja í prestinn (8952319) eða senda tölvupóst (sigridur@grafarholt.is)

Lovísa Guðmundsdóttir, 16/9 2011

Léttmessa í Guðríðarkirkju sund.18 sept.kl 11

Léttmessa í Guðríðarkirkju kl 11 sund. 18 sept. “elskið óvini yðar”. Prestur séra Sigríður Guðmarsdóttir. Tónlistarflutningur í umsjá Þorvaldar Halldórssonar. Meðhjálpari Aðalsteinn D.Októsson, kirkjuvörður Lovísa Guðmundsdóttir. Kaffisopi eftir messu.

Lovísa Guðmundsdóttir, 14/9 2011

Kristin íhugun fim kl 17:30

Lovísa Guðmundsdóttir, 14/9 2011

Kirkjan er opin frá þriðjudegi til föstudags frá kl. 10:00 til 16:00, lokað á mánudögum.
Sóknarprestur Grafarholtsprestakalls er dr. Sigríður Guðmarsdóttir, netfang: sigridur@grafarholt.is, veffang: sigridur.org. Viðtalstímar prests eru eftir samkomulagi.

Merki Guðríðarkirkju

Mánudagur

· 15:00-15:45 Litlir lærisveinar (6 ára hópur) í sal Sæmundarskóla (Árni Þorlákur)

Dagskrá ...