Guðríðarkirkja

 

Jól í skókassa

Það styttist í skil á kössum í verkefninu “Jól í skókassa” þetta árið, en þar er safnað jólagjöfum fyrir munaðarlaus börn í Úkraínu fyrir tilstilli KFUM og K á Íslandi og KFUM í Úkraínu.

Lesa áfram …

Þorgeir Arason, 22/10 2008

Fjölskyldumessa á “Græna daginn” 12. október

“Græni dagurinn” verður nú haldinn hátíðlegur annað árið í röð í Grafarholti með fjölskyldumessu sem hefst í sal Ingunnarskóla 12. október kl. 11. Sköpunin og umhverfið verða þar í brennidepli.

Lesa áfram …

Þorgeir Arason, 11/10 2008

Gjafir til kirkjunnar

Margvíslegir gripir verða keyptir til Guðríðarkirkju í tilefni af vígslunni og allir miða þeir að því að fegurð, samræmi og virðuleiki megi ríkja yfir helgihaldinu. Við værum mjög þakklát ef félög og/eða eintaklingar vildu leggja okkur lið við kaup á þessum gripum, t.a.m. vegna minningargjafa.

Lesa áfram …

Þorgeir Arason, 11/10 2008

Októberpistill sóknarnefndarformanns

“Alveg er ótrúlega stutt síðan boðað var til fyrsta safnaðarfundar í sókninni og sömuleiðis örstutt síðan við fengum okkar sóknarprest. Þegar ég horfi þessa stuttu leið til baka finnst mér við hafa verið leidd áfram af æðri mætti” segir Níels Árni Lund í októberpistli sínum.

Lesa áfram …

Þorgeir Arason, 11/10 2008

Af byggingu Guðríðarkirkju

Byggingarframkvæmdir við Guðríðarkirkju í Grafarholtssókn ganga mjög vel og kirkjuskip og safnaðarheimili óðum að taka á sig mynd enda verður kirkjan vígð 7. desember nk.

Lesa áfram …

Þorgeir Arason, 3/10 2008

Messa 5. okt. kl. 11

Sunnudagurinn 5. október:

Messa í Þórðarsveigi 3 kl. 11. Fyrsta altarisganga fermingarbarna í 8. HH.

Lesa áfram …

Þorgeir Arason, 2/10 2008

Fermingarundirbúningur vetrarins hafinn

Fermingarundirbúningur er nú hafinn í Grafarholtssókn veturinn 2008-2009. Kennt er í Sæmundarskóla og Ingunnarskóla en fermt verður í Guðríðarkirkju næsta vor.

Lesa áfram …

Þorgeir Arason, 1/10 2008

Leiklistarhópur í barnastarfi Grafarholtssóknar

Leiklistarhópur fyrir börn í 3. bekk í Grafarholtssókn er tekinn til starfa undir stjórn Laufeyjar Bráar, leikkonu og æskulýðsfulltrúa kirkjunnar. Þátttaka er vonum framar.

Lesa áfram …

Þorgeir Arason, 28/9 2008

Ást, kynlíf og hjónaband

Séra Sigríður Guðmarsdóttir verður ein af framsögumönnum á guðfræðimálþingi um kynheilsu og mannréttindi sem haldið verður í Sal Þjóðminjasafnsins við Suðurgötu föstudaginn 3. október kl. 14:00 – 16:00 í tilefni af útkomu bókar dr. Sólveigar Önnu Bóasdóttur með ofangreindum titli.

Lesa áfram …

Þorgeir Arason, 25/9 2008

KFUM og KFUK starfið er farið af stað

9-12 ára strákar eru velkomnir á KFUM-fundi á svæði 2 í Ingunnarskóla á þriðjudögum kl. 17-18.

9-12 ára stelpur eru velkomnar á KFUK-fundi á svæði 3 í Ingunnarskóla á miðvikudögum kl. 17:15-18:30.

Lesa áfram …

Þorgeir Arason, 23/9 2008

Kirkjan er opin frá þriðjudegi til föstudags frá kl. 10:00 til 16:00, lokað á mánudögum.
Sóknarprestur Grafarholtsprestakalls er dr. Sigríður Guðmarsdóttir, netfang: sigridur@grafarholt.is, veffang: sigridur.org. Viðtalstímar prests eru eftir samkomulagi.

Prestur á neyðarvakt samstafrssvæðis Grafarvogs-, Grafarholts- og Árbæjarsafnaðar s. 896-7970

Sunnudagur

· Messa og barnastarf kl. 11 eða kl. 14, auglýst á forsíðu

Dagskrá ...