Guðríðarkirkja

 

Helgihald í Guðríðarkirkju 13.-14. desember

Helgihald í Guðríðarkirkju fyrstu helgina eftir vígslu:

Laugardagur 13. desember: Kirkjuskóli kl. 11.

Sunnudagur 14. desember: Messa kl. 11, séra Sigríður Guðmarsdóttir.

Lesa áfram …

Þorgeir Arason, 11/12 2008

Opið hús og leiðsögn um Guðríðarkirkju

Opið hús verður þann 9., 11., 16 og 17. desember (þriðjudaga og miðvikudaga) á milli 17 og 18:30 í Guðríðarkirkju. Þá gefst fólki kostur á að skoða nýju húsakynnin og presturinn býður upp á skoðunarferðir og skýrir táknmál kirkjunnar.

Lesa áfram …

Þorgeir Arason, 9/12 2008

Fullt út úr dyrum við vígslu Guðríðarkirkju

Fullt var út úr dyrum þegar Guðríðarkirkja í Grafarholti var vígð, annan sunnudag í aðventu. Fjölda mynda frá athöfninni má nú finna á vefnum.

Lesa áfram …

Þorgeir Arason, 8/12 2008

Guðríðarkirkja vígð á sunnudaginn kl. 14

Guðríðarkirkja í Grafarholti verður vígð við hátíðlega athöfn af biskupi Íslands annan sunnudag í aðventu, 7. desember, kl. 14.

Lesa áfram …

Þorgeir Arason, 3/12 2008

Kirkjuskóli og jólatré á laugardag

Laugardagurinn 6. desember: Kirkjuskóli í Ingunnarskóla kl. 11, gengið eftir kirkjuskólann til Guðríðarkirkju þar sem biskup tekur á móti börnunum.

Kveikt á ljósum á Lions-jólatrénu á kirkjulóðinni kl. 18.

Lesa áfram …

Þorgeir Arason, 3/12 2008

Merki Guðríðarkirkju

Guðríðarkirkja hefur nú eignast merki, og minnir það allt í senn á Kriststáknið vínviðinn, sögu Guðríðar í Vínlandi og forna, íslenska útskurðarlist.

Lesa áfram …

Þorgeir Arason, 3/12 2008

Einstök byggingarsaga Guðríðarkirkju

Ákveðið var að leita nýrra leiða við byggingu Guðríðarkirkju, sem að tryggði söfnuðinum fagurt guðshús þar sem jafnframt væri gætt mikillar hagkvæmni. Ágrip af einstakri byggingarsögu kirkjunnar má lesa að baki “Áfram”-smellunni.

Lesa áfram …

Þorgeir Arason, 2/12 2008

Eina kirkja Þjóðkirkjunnar sem ber nafn konu verður í Grafarholti

Kirkjuhús Grafarholtssóknar, sem verður vígt á sunnudaginn, hefur sem kunnugt er hlotið nafnið Guðríðarkirkja og verður eina kirkja Þjóðkirkjunnar íslensku sem ber nafn konu.

Lesa áfram …

Þorgeir Arason, 2/12 2008

Biskupafundur skoðaði kirkjubygginguna

Biskup Íslands og vígslubiskupar heimsóttu Guðríðarkirkju í síðustu viku og kynntu sér gang kirkjubyggingarinnar. Biskupsritari tók allmargar myndir við það tækifæri.

Lesa áfram …

Þorgeir Arason, 1/12 2008

Myndir af Guðríðarkirkju – viku fyrir vígslu

Nú er aðeins vika í að Guðríðarkirkja í Grafarholtssókn verði vígð. Rögnvaldur Guðmundsson tók nokkrar myndir af kirkjunni eins og hún lítur út viku fyrir vígsluna og má sjá þær með því að smella hér.

Lesa áfram …

Þorgeir Arason, 1/12 2008

Kirkjan er opin frá þriðjudegi til föstudags frá kl. 10:00 til 16:00, lokað á mánudögum.
Sóknarprestur Grafarholtsprestakalls er dr. Sigríður Guðmarsdóttir, netfang: sigridur@grafarholt.is, veffang: sigridur.org. Viðtalstímar prests eru eftir samkomulagi.

Prestur á neyðarvakt samstafrssvæðis Grafarvogs-, Grafarholts- og Árbæjarsafnaðar s. 896-7970

Sunnudagur

· Messa og barnastarf kl. 11 eða kl. 14, auglýst á forsíðu

Dagskrá ...