Kór Akraneskirkju – Tónleikar
Kór Akraneskirkju heldur tónleika í Guðríðarkirkju í Grafarholti, fimmtudaginn 12. mars kl. 20:30. Lesa áfram …
Davíð Ólafsson, 10/3 2009
Kór Akraneskirkju heldur tónleika í Guðríðarkirkju í Grafarholti, fimmtudaginn 12. mars kl. 20:30. Lesa áfram …
Davíð Ólafsson, 10/3 2009
Kynning á sálgæslu kirkjunnar hefur verið sett á vefinn youtube. Myndbandið má skoða hér.
Þorgeir Arason, 10/3 2009
Árið 2006 var söfnuður lagður niður í Bandaríkjunum sem séra Sigríður hafði áður þjónað í Holy Trinity í North Caldwell NJ í Bandaríkjunum. Sóknarnefnd þar ytra ákvað að gefa hinum unga söfnuði á Íslandi kirkjugripi sína. Eignaðist söfnuðurinn okkar þar með altariskross, kalek, kertastjaka og margt fleira. Holy Trinity átti útsaumuð knéföll með tákmyndum postulanna og var ákveðið að ramma myndirnar inn og skreyta skála kirkjunnar. Hér á eftir fer skjásýning sem segir sögu hvers postula fyrir sig svo að fólk geti áttað sig á táknmyndunum. Smellið hér til að skoða sögu postulanna.
Þorgeir Arason, 6/3 2009
Guðríðarkirkja stendur fyrir bleikum degi á alþjóðlegum baráttudegi kvenna 8. mars, með messu, súpu og róttæku femínísku hinsegin örþingi í minningu argentínska frelsunar-, kvenna-, hinsegin-, póstkólóníalguðfræðingsins Marcellu Althaus-Reid.
Þorgeir Arason, 5/3 2009
Hér má finna upplýsingar um próf sem eru fram undan í fermingarfræðslunni og námsefni fyrir þau.
Þorgeir Arason, 18/2 2009
Guðríðarkirkja í Grafarholti óskar eftir að ráða félagslyndan, duglegan og glaðlyndan starfsmann til að annast kirkjuvörslu í nývígðu guðshúsi frá 1. mars nk. Nánari upplýsingar og starfslýsingu má finna að baki “Áfram”-smellunni.
Þorgeir Arason, 16/2 2009
Nú er hægt að hlusta á útvarpsmessuna úr Guðríðarkirkju sl. sunnudag á vef Ríkisútvarpsins með því að smella hér.
Þorgeir Arason, 16/2 2009
Sunnudagurinn 15. febrúar, Biblíudagurinn:
Útvarpsmessa kl. 11 í samstarfi við Biblíufélagið. Gunnlaugur A. Jónsson, prófessor í guðfræði, predikar.
Sunnudagaskólinn á sama tíma.
Þorgeir Arason, 12/2 2009
“Vatnið sem sakramenti” nefnist opinn fyrirlestur sem sóknarpresturinn í Grafarholti flytur nk. mánudag, 9. febrúar kl. 16-18, í Guðríðarkirkju.
Þorgeir Arason, 6/2 2009
Sunnudagurinn 8. febrúar, fyrsti sunnudagur í níuviknaföstu:
Messa í Guðríðarkirkju kl. 11. Gídeonmenn koma í heimsókn.
Sunnudagaskólahátíð prófastsdæmisins í Grafarvogskirkju kl. 11. Rúta frá Guðríðarkirkju kl. 10:30.
Þorgeir Arason, 5/2 2009
Kirkjan er opin frá þriðjudegi til föstudags frá kl. 10:00 til 16:00, lokað á mánudögum.
Sóknarprestur Grafarholtsprestakalls er dr. Sigríður Guðmarsdóttir, netfang: sigridur@grafarholt.is, veffang: sigridur.org. Viðtalstímar prests eru eftir samkomulagi.
Prestur á neyðarvakt samstafrssvæðis Grafarvogs-, Grafarholts- og Árbæjarsafnaðar s. 896-7970
· Messa og barnastarf kl. 11 eða kl. 14, auglýst á forsíðu
Guðríðarkirkja, Kirkjustétt 8, 113 Reykjavík. Sími 577-7770 · Kerfi ![]()