Guðríðarkirkja

 

Barnakór Grafarholtssóknar

Barnakór Grafarholtssóknar

Kórferðalag og æfingabúðir í Kaldárseli

Laugardaginn 18.apríl,  verður  kórferðalag og æfingabúðir í Kaldárseli í Hafnarfjarðarhrauni.  Hittumst, klædd eftir veðri, fyrir utan Guðríðarkirkju, Kirkjustétt 8, Grafarholti  kl.: 9:00. Við æfum okkur að syngja, leikum okkur og skemmtum í sveitasælunni. Komum heim í Guðríðarkirkju  kl.: 17:00.

Það er nauðsynlegt að senda tölvupóst eða SMS og tilkynna þátttöku, sem fyrst. 

Það væri mjög gott ef einhverjir foreldrar/forráðamenn kæmu með, til að aðstoða og njóta dagsins með okkur.

Það verða framreiddir ávextir við komu í Kaldársel, við höfum pylsuveislu í  hádeginu og útbúum einnig miðdegishressingu í Kaldárseli.

Bestu kveðjur,

Berglind kórstjóri    

S. 660-7661

barnakor@gmail.com

Hægt er að skoða myndir frá Kaldárseli á eftirfarandi slóð:

http://www.kfum.is/myndir/?g2_itemId=7

Davíð Ólafsson, 17/4 2009

Messur á páskadag.

Sunnudagur 12. apríl, páskadagsmorgunn:

“Eldur og fiðrildi”: Hátíðarmessa á páskadagsmorgunn kl. 8 árdegis. Eldurinn í titli messunnar vísar til páskakertisins stóra sem tendrað er á páskadagsmorgun til tákns um upprisuna. Í kirkjunni hangir uppi verk um fiðrildi sem unnið er af konum í Kvennasmiðju Námsflokka Reykjavíkur og mun upprisuprédikunin fjalla að nokkru leyti um verkið. Prestur dr. Sigríður Guðmarsdóttir, organisti Hrönn Helgadóttir, kór Guðríðarkirkju syngur. Morgunverður og páskaegg eftir messu.

“Eldur og fiðrildi”  Fjölskyldumessa kl. 11. Prestur dr. Sigríður Guðmarsdóttir, organisti Hrönn Helgadóttir, barnakór Guðríðarkirkju syngur undir stjórn Berglindar Björgúlfsdóttur. Umsjá ásamt dr. Sigríði: Laufey Brá Jónsdóttir.  Páskaeldur og fiðrildi.

Davíð Ólafsson, 11/4 2009

Helgihald um páska.

Helgihald og starf í Guðríðarkirkju um bænadaga og páska:

Íhugun og gleði fyrir börn og fullorðna, verið velkomin!

 

Miðvikudagur 8. apríl:

Dagmálatíð kl. 9. Fyrsta helgihald í kirkjunni eftir breytingarnar. Kyrrð er í kirkjunni frá 8:45, bænastundin tekur uþb stundarfjórðung og síðan er boðið upp á morgunmat.

Foreldramorgunn kl. 10-11:30. Kaffi og spjall. Umsjá Elfa Dögg S. Leifsdóttir og Fríða Sandholt

Gáttin: Opið hús fyrir atvinnuleitendur kl. 12:30-14:30. Hádegismatur og síðan haldið áfram að fjalla um ferilsskrár. Umsjá Laufey Brá Jónsdóttir og Jón Ingi Hákonarson.

 

Fimmtudagur 9. apríl, skírdagur:

“Þvoið hvert annars fætur”: Íhugunarstund í Guðríðarkirkju frá kl. 14-16. Góð stund til bænar og íhugunar.

Kvöldmáltíð og Getsemanevaka á skírdagskvöld kl. 20. Prestur dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson, tónlistarflutningur Þorvaldur Halldórsson. Í lok messu eru gripir og dúkar teknir af altari og sest er til hljóðrar stundar, Getsemanevöku, við gluggann að garðinum fagra.

 

Föstudagur 10. apríl, föstudagurinn langi:

Passíusálmalestur kl. 10-14. Ein helstu trúarljóð kristinnar kirkju og perlur barokktímans verða lesnir í 5. sinn í sókninni að þessu sinni og koma lesarar víða að. Fólki er í sjálfsvald sett hvort það hlustar á einn sálm, nokkra eða alla og eintök af Passíusálmunum liggja frammi í kirkjunni.

Tenebrae: Krossljósastund kl. 20. Lesið verður úr Píslarsögu Jóhannesarguðspjalls og síðan lesin sjö orð Krists á krossinum meðan hugleitt er við krossinn.

 

Sunnudagur 12. apríl, páskadagsmorgunn:

“Eldur og fiðrildi”: Hátíðarmessa á páskadagsmorgunn kl. 8 árdegis. Eldurinn í titli messunnar vísar til páskakertisins stóra sem tendrað er á páskadagsmorgun til tákns um upprisuna. Í kirkjunni hangir uppi verk um fiðrildi sem unnið er af konum í Kvennasmiðju Námsflokka Reykjavíkur og mun upprisuprédikunin fjalla að nokkru leyti um verkið. Prestur dr. Sigríður Guðmarsdóttir, organisti Hrönn Helgadóttir, kór Guðríðarkirkju syngur. Morgunverður og páskaegg eftir messu.

“Eldur og fiðrildi”  Fjölskyldumessa kl. 11. Prestur dr. Sigríður Guðmarsdóttir, organisti Hrönn Helgadóttir, barnakór Guðríðarkirkju syngur undir stjórn Berglindar Björgúlfsdóttur. Umsjá ásamt dr. Sigríði: Laufey Brá Jónsdóttir.  Páskaeldur og fiðrildi.

Davíð Ólafsson, 7/4 2009

Jónasarvaka

Jónasarvaka

Þar sem háir hólar

Miðvikudaginn 15. apríl kl. 15.00  verður flutt dagskrá í Guðríðarkirkju sem hefur hlotið nafnið Jónasarvaka

Á dagskránni munu listamennirnir  Stefán Helgi Stefánsson tenor og Davíð Ólafsson bassi  flytja einsöngs-  og tvísöngslög við undirleik Helga Hannessonar píanóleikara

Ljóðin tengjast öll Jónasi Hallgrímssyni

Þá flytja  8 konur ljóð sem birtust í ljóðabókinni Í sumardal og kom út 16. nóv. 2007 þegar 200 ár voru frá fæðingu skáldsins

Þórður Helgason dósent við Kennaraháskóla Íslands flytur stutt æviágrip Jónasar og stjórnar dagskránni

Bókin Í sumardal hefur verið endurútgefin og verður til sölu við þetta tækifæri á kr. 1000.-

Jónasarhópurinn

Davíð Ólafsson, 1/4 2009

Gáttin 1. apríl – Að gera ferilskrá

 Gylfi Dalmann Aðalsteinsson vinnumarkaðsfræðingur mun færa okkur í allan sannleikann um það hvernig við búum okkur til framúrskarandi ferilskrá í Gáttinni Guðríðarkirkju Grafarholti miðvikudaginn 1. apríl kl. 12:30. Allir velkomnir.

Guðríðarkirkja kirkjan þín

Davíð Ólafsson, 1/4 2009

Framkvæmdir í Guðríðarkirkju

Vegna framkvæmda verður ekki messað í Guðríðarkirkju 28. mars og 5. apríl. Nú er verið að setja upp milliveggi sem auka notagildi kirkjunnar til muna. Þá verður hægt að hólfa húsið niður í nokkrar einingar sem þýðir að við getum haft marga viðburði í gangi á sama tíma. Hægt er að skoða þetta á krækjunni hér til hliðar sem er merkt Tónleikasalur.

Davíð Ólafsson, 26/3 2009

Gáttin miðvikudag kl. 12.30

Gáttin- Opið hús fyrir þau sem leita atvinnu og bjartrar framtíðar!!!

25.mars                        Fyrirlestur: “Þekktu réttindi þín”

 

Gáttin er verkefni styrkt af Forvarna- og framfarasjóði Reykjavíkurborgar. Umsjónarmenn Gáttarinnar eru Jón Ingi Hákonarson og Laufey Brá Jónsdóttir. Þau munu standa fyrir opnu húsi á miðvikudögum allar götur frá 18. mars og eru allir velkomnir sem leita atvinnu og bjartrar framtíðar. Boðið er upp á súpu í hádeginu kl. 12.30.

 

 

Davíð Ólafsson, 24/3 2009

Vatnsmessa á sunnudaginn kl. 11.00

Alþjóðlegur dagur vatnsins 2009. Fjölskyldumessa kl. 11 þar sem  vatns og vatnsleysis er minnst í lestrum, söngvum og bænum. Prestur dr. Sigríður Guðmarsdóttir, umsjá Laufey Brá Jónsdóttir, undirleikur Anna Elísa Gunnarsdóttir. Leikhópurinn Leikandi Lærisveinar leikur leikrit í messunni. Meðhjálparar Aðalsteinn Dalmann Októsson og Sigurður Óskarsson.

 

Davíð Ólafsson, 18/3 2009

Aðalsafnaðarfundur 18. mars kl. 20:00

Aðalfundur Grafarholtssóknar verður haldinn miðvikudaginn 18. mars kl. 20:00 í Guðríðarkirkju.

Dagskrá:  Venjuleg aðalfundarstörf, kosningar og afgreiðsla tillagna. Öll þau sem eiga lögheimili í Grafarholti og Úlfarsárdal, eru í þjóðkirkjunni og eru 16. ára og eldri eiga tillögu og atkvæðisrétt á aðalsafnaðarfundi.

Davíð Ólafsson, 17/3 2009

Gáttin – Fundir fyrir atvinnulausa

GÁTTIN OPNAR Í GUÐRÍÐARKIRKJU

Merkilegir Miðvikudagar-

Lesa áfram …

Davíð Ólafsson, 11/3 2009

Kirkjan er opin frá þriðjudegi til föstudags frá kl. 10:00 til 16:00, lokað á mánudögum.
Sóknarprestur Grafarholtsprestakalls er dr. Sigríður Guðmarsdóttir, netfang: sigridur@grafarholt.is, veffang: sigridur.org. Viðtalstímar prests eru eftir samkomulagi.

Prestur á neyðarvakt samstafrssvæðis Grafarvogs-, Grafarholts- og Árbæjarsafnaðar s. 896-7970

Sunnudagur

· Messa og barnastarf kl. 11 eða kl. 14, auglýst á forsíðu

Dagskrá ...